Kjökur
June 22, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Nóttina sem leið varð ég var við það að ég gaf frá mér einkennileg hljóð og kjökur sem að aldrei eiga sér stað vegna þrjóskrar karlmennsku. Ég vakti sjálfan mig við þessi óhljóð, sem ég virðist hafa verið að framleiða en aðeins í brot úr sekúndu því ég sofnaði strax aftur og steingleymdi næstum því þessari óvæntu uppákomu.
Þetta fær mig til að hugsa um hvað ég geri í svefni, að öllum jafnaði hélt ég að ég lægi kyrr sem dauður eða hamaðist á ‘Z’ takkanum á lyklaborðinu mínu. En svo virðist sem ég hafi annað líf þegar ég sef og tekur það sér mynd í óskiljanlegum róna sem raular, hrópar eða kjökrar eitthvað við sjálfan sig áður en hann sofnar á undraverðum skömmum tíma.
Óhugnalegt.
- Hjálmar Kakali Baldursson
Kæri lesandi
Hér er tæmandi listi yfir hluti, atburði eða hegðun sem gefur mér blóðnasir úr bræði:
1: Bankastarfsmenn sem vísa mér til annars bankastarfsmanns sem síðan vísar mér til baka til upprunalegs bankastarfsmanns.
2: Hægfara vegfarendur (Nánast allir sem verða á vegi mínum þegar ég legg mjaðmirnar í hraðröltið mitt).
3. Ummálsmiklir vegfarendur sem stífla gangstéttir (land baujur, afsprengi vestrænnar neytenda menningar, týndir hvalir).
4. Hrosshöfuð í rúminu mínu.
5. Fólk sem álítur pizzukassa sem ég kann að vera á gangi með sem samræðu ‘ísbrjót’ og biður jafnvel um sneið, en lítur ekki við mér þegar ég klæðist netbuxunum mínum.
6. Að pakka tveggja ára virði af búslóð niður í súputening (engin verðlaun í boði fyrir þá sem giska á úrkomuna).
7. Gestir sem ganga inn í herbergið mitt án þess að banka og sjá mig í barnslegu sakleysi á nærbuxunum.
8. Nágrannar sem draga fyrir svefnherbergis gluggann sinn.
9. Að missa af partýi því ég á ekki ‘Facebook’ reikning.
10. Að missa úr íslensku sumri.
Ég gæti haldið endalaust áfram en til að til að standa í stigu við þeirri svartsýni sem blasir við mér koma hér atriði sem valda mér kærri gleði:
1. Spiderman tyggjó tattoo.
May 6, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Þú hefur væntanlega heyrt um að yfirnáttúrulegir atburðir eigi sér stað í raftækjum hverskonar? Sjónvörp og tölvur hafa orðið fyrir barðinu á ofsafullum afturgöngum sem fengu ekki nóg af facebook eða friends í lifanda lífi og ljós slökkt og kveikt í trylltum takti eins og um óþolandi krakka væri að ræða. Persónulega hef ég aldrei orðið vitni af yfirnáttúrulegum atburðum og bjóst ég heldur ekki við því. En ég get með erfiðleikum útskýrt eftirfarandi ljósmynd sem ég ætlaði að taka af bolnum mínum í dag.

Þetta virðist vera, eitthvað sem getur aðeins verið útskýrt sem ‘limrisa’. Ég fer með myndavélina mína í viðgerð á morgun.
-Hjálmar Kakali Baldursson.
April 28, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Ef það er eitthvað í þessum dúllulega heimi sem fær mig til þess að hlaupa út í vindinn nakinn á meðan ég þeyti vindmillum út í loftið, þá eru það fréttir. Nánar tiltekið góðar fréttir, sérstaklega þegar þær bera í för með sér nafnið PJ Harvey. Nýja platan hennar og samstarfsaðila hennar John Parish; A Woman A Man Walked By (Ísl:Hvorugkyn rölti hjá), virðist lofa góðu og iða ég nú allur af trylltri þrá eftir þessari plötu.
Bókstaflega skrækti af kæti allan tímann sem þetta lag var í gangi. Njóttu eða mættu illum örlögum!
- Hjálmar Kakali Baldursson
April 18, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Í dag fjárfesti ég í nýjum sól gleraugum. Ég segi nýjum því þau eru ný fyrir mér, en eru ansi gömul ef litið er yfir heildina. Miðað við útlitið á þeim get ég ímyndað mér að eldri herramaður hafi átt þau til að byrja með. Einn af þessum eldri herramönnum sem sitja óþarflega mikið á garðbekkjum í nágrenni við leiksvæði. Hann hefur síðan sjálfur orðið hluti af eltingarleik við menn á sínum aldri og verið of seinn að ná stikkfrí hinumeginn við landamærin.
Þetta lag spilar í gegnum huga minn og búk, sem kemur fram í trylltu göngulagi, þegar ég set sól gleraugun upp:
Og svona lýt ég út þegar ég er búinn að setja herlegheitin upp á nefið á mér.
- Hjálmar Kakali Baldursson
April 7, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Inni á bókasafni skólans var ég sleginn slíku afdráttarlausu garnargauli að tíminn virtist standa í stað. Algjör þögn ríkti á bókasafninu eins og við er að búast og fór eftirfarandi í gegnum höfuðið á mér á meðan árásinni stóð:
- Shit hvað þetta er hátt.
- Kannski hættir þetta ef ég sýg magann inn.
- Nei.
- Hvað ætli fólk haldi?.
- Kannski ég klappi maganum bara eins og ég sé að róa snælduvitlausan hund.
- Fólkið heldur þá kannski að börnin sem ég borðaði í hádeginu séu að fara vel niður.
- Hjúkk, loksins búið.
- Aðallega nemendur af asískum uppruna hérna.
- Kannski er óvenjulega hátt garnagaul merki um góða mannasiði eða frjósemi.
- Kannski allir girnist mig nú hér inni.
- Ef svo er þá fela þau það virkilega vel.
Ég áttaði mig síðan á því að allar bækurnar voru á útlensku, þóttist fá símtal, og hálf hljóp út.
- Hjálmar Kakali Baldursson
April 3, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Þessi mynd var tekin fyrir næstum tvemur árum.

Nunna, mörgæs og sígauni.
Það sem er merkilegt við hana er ekki að ég, fullvaxta karlmaður er klæddur í nunnubúning, að þykjast vera mörgæs. Eða að sígauni hafi í hótunum við mig.
Heldur finnst mér ansi merkilegt að ég á nú sama jakka og þessi sígauni. Ansi vel klæddur sígauni, verð ég að segja.
- Hjálmar Kakali Baldursson.
April 2, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Kæra dagbók,
í dag hefur það verið mér óbærilegt að sitja kyrr. Ekki vegna þess hve ljúft veðrið er og ég einfaldlega verð að taka göngutúr. Ekki vegna þess að ég er hlusta á dynjandi taktfasta tónlist sem fær mig til að dansa. Og ekki vegna þess að lukkudýr skólans slapp og át handfylli af nemendum.
Nei, heldur vegna þess að ég er með fílapensil á rassinum. Ef fram fer sem horfir þá á hann hreint út sagt eftir að bjóða mér góðan daginn og ógna núverandi stöðu höfuðs með gylliboðum um betra kvennafar ef ég færi nú bara að ganga á höndum.
Þangað til sit ég eins og ég sé að leysa tímafrekasta vind sem meginhluti evrópu hefur orðið vitni af. En það er Finnsk saumakona sem á núverandi heimsmet í leysvindu að nafni Haapalainen Paatelainen.
Færslu líkur 2. Apríl 2009
- Hjálmar Kakali Baldursson
April 1, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Ef það er eitthvað sem mér leiðist meira en leiðinlegt fólk, þá er það leiðinlegt fólk sem smjattar leiðinlega hátt og kyngir hærra.
Verð að skipta um gleðikonu.
- Hjálmar Kakali Baldursson
March 31, 2009 | Leave a Comment
Kæri lesandi
Nýlega átti undirritaður afmæli. Sá dagur kann að vera mikilvægur fyrir einhvern sem er hundeltur af mannætum, en fyrir einhvern eins og mig sem bý í svokölluðu siðmenntuðu samfélagi, er þessi dagur gjörsamlega gagnslaus. Einhverra hluta vegna vekur þessi dagur athygli annarra og vekur það undrun margra að ekkert sé gert við þennan afleita fæðingardag.
Ég lét þó undan þrýstingi samfélagsins og gerði mér dag í Brighton þar sem gríðar sterkir vindar blésu úr mér allt hor og litlu mátti muna að ég yrði úti í ofsanum.* En þrátt fyrir allt virtist ég hafa skemmt mér vel, sögðu viðstaddir.
Sagan segir að ég hafi endað á hótel herbergi og farið í bað með bjór og regnhlíf til að verjast vætunni. Sjaldan átt jafn eftirminnilegan afmælisdag. Er mér sagt.
*Ég er stórlega að ýkja.
- Hjálmar Kakali Baldursson
